Octavo
03.09.2007 13:45:55 / Sonja

May The Force Be With You

 

En nú er mánudagur og mins er veikur heima, ekki fyrsta ekki í annað og ekki í 30 skipti á þessu ári ónei!, planið var samt að mæta í skólann en ekki mér var það bannað svo ég fæ fjarvist í staðinn jeezzz. Jább lagt var á stað með mig uppá heilsugæslustöð 3 skiptið á 5 dögum váá en reyndar er þetta sona 100 á þessu ári svo vön manneskja, svo aldurinn er greinilega farinn að segja til sín ekki er maður lengur þetta hressa lamb sem hoppaði á milli urða forðum daga.
En það sem er að mér er ljótur hósti og slím og slef sem lætur mann verkja í brjóstkassan hálasinn og alla leið uppí enni svo verður maður crazy dasaður eftir þessi köst heldur valla höfði en þetta er á góðri leið að skaða á mér lungun eða eitthvað fyrr eða síðar verður þetta LUNGNABÓLGA í ANNAÐ sinn á þessu ári takk fyrir. En það sem þetta heitir veit ég ekkert um þetta allavegna byrjar á A og svo annar vírus sem byrjar á N... jáá náði ekki meiru frá því sem læknrinn var að segja því ég hef ekki lært læknatungumál svo staðan er þessi;)..

Allir að fá leið á mér og ég líka
Stelpur farið þið líka að bloga!

SONJA

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 14:53:57 / Sonja

Bigga Skúnk finnst Malt MJÖG gott

 

Jahá fyrsta skóla vikan búin..
Fokk hvað þessi skóli er ruglingslegur!!
þetta er eitt fkn völundarhús ég veit ekki hvað oft ég erbúin að týnast oft og svo rata þessir kennarar ekkert betur en ég! Eitt skiptið spurði ég til vegar og kallin senti mig eitthvert lengst  svo var ég í smá stund að fatta að ég var á röngu stað í byggingunni og þurfti þá að koma mér til baka það var EKKI leikur einn, svo loksins fann ég stofuna og þá var ég orðin soldið sein en sem betur fer var kennarinn lika týndur svo ég fékk ekki seint heh..
en ég er búin að redda mér korti sem betur fer!
Sem betur fer er ég alltaf með eitthverjum sem ég þekki í tíma nema í dönsku. Ég er aldrei með Hlín eða Ástu í tíma sem að sökkar!

En núna er helgi og minns er einn heima fyrir utan stóra bró sem má orða að ég sé að passa;). Stelpurnar komu í heimsókn í gær og fóru að dansa rave dansinn við skemmtilegt undir spil Klaxons svo var farið út í rigninguna ekki voru mörg spor þar á ferð eeennnn
Eyrún F peysan þín er hjá mér & Hlín bláa spöngin þín er hér ogso!

HeyrðuHeyrðu svo komst ég að þeirri snilld að busunin er fram farin á Höfninni! Ef að það er verið að fara að henda okkur í sjóinn er svo svosem okay maður hefur hoppað nokkrum sinnum svo það er ekki neitt eitthvað svaka svaka! nema við séum að fara að synda í fiska pörtum og slori ohh ætla ekki einu sinni að hugsa um það:S... en vonum að þetta hafi verið misskilningur!! ójá

En jæja ég læt mig hverfa!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 20:04:25 / Sonja

baahhh

 

Yezz skólinn að byrja:S
hohohonnei

Ég er með svo æðislega stundatöflu fkn hell..
allir dagar með eyðu nema fimmtudagar heyy já þá er ég lika til hálf sjö!:frown:
svo er nff.is dótið mitt fáranlegt hjá öllum er nafnið en nei þá kemur mitt skonsa91..
sem btw kennari minn hló af takk!
ég er ein í bekk en samt er Illugi og Valla með mér í bekk, og reyndar lika Gummi,,
en svo verð eg ein!,,mér til mikilar hamingju, fokk
Mínir foreldrar voru ekki glaðir svo ég hef nú soldið til míns máls að segja!
Ég er í 26 tímum með 18 einingar, er það skrítið? ég bara fatta ekki þessar einingar en jæja..

En eftir að hafa farið í flensuna skrapp ég í bæinn með hlín að leita af skólatösku fann enga! en svo hittum við geggjað kúl fólk sem voru í busakynningu í mh jáá möggu og co!
svo fór ég með þeim á laugarveginn að versla föt á DavíðA. svo heim og enda ég hér
ekki svo góð í skapinu!
Svo er skóli klukkan 11 hjá mér ég hef ekki grænan hvað ég er að fara að gera bara hanga þar því skóla kennsla byrjar ekki fyrr en á fimmtudaginn heyy jáá þá er ég til hálf sjö og engin eyða  á þeim degi yezz,,, váá ef ég fæ ekki fokk mikið að breyta þessu þá er ég dauð! ohh

heyrðu nenni þessu ekki:S

SonjaSigríður


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 00:29:03 / Sonja

Menningarnótt...

Naflakusk á Menningarnótt!

klukkan 20:00

í Hljómskálagarðinum

Frumflutt nýtt lag
MADS!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 00:17:39 / Sonja

Mistery

 

Jáá það er mér hulin ráðgáta hvernig þessi síða er að virka,
það er ekkert gert inná hana samt er alltaf slatti af fólki alltaf að tékka á henni...

En skemmtilegt að segja frá því að ég var að koma frá Spáni:

álit mitt á spánverjum í grófum dráttum er sona:

Algjörar frekjur,
Svínarar í umferðinni,
Perrar
ææiii vá get haldið endalaust áfram en þetta á bara við þá sem ég hitti;) hafa það á hreinu..

En ég fór með Hlín og hendes fjöldskyldu...og verð ég að segja það þessi ferð var snilld og er maður soldið tanaður en samt ekkert mikið!! ég er næpa í samanburði við Una SPECT<3,,
Enjáá ekki var mikið um myndavél í þessari ferð en samt einhverjar myndir voru teknar sem koma á næstu tímum eða?
Enn margt var brallað að frá því að klífa fjall í 35 stiga hita og sitja á úlfalda!! svo jáá

En svo er maður kominn á klakann sem mér finnst bara mjög gott!!
mikið að gera hjá Naflakuski sem er btw að fara að spila næstu helgi sem sagt menningarnótt!! jáá endilega fylgist með því við erum að fara að stíga á svið hjá HinuHúsinu en því miður gef ég ekki gefið meiri upplýsingar því fátt meira veit ég!!

en hinsvega ætla ég bara að kveðja

//Sonja


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 17:49:53 / Hlín

<3

Sæl öll sömul.

Margt og mikið búið að vera að gerast núna síðustu daga og lítill tími fyrir myndir og blogg. Fólk hefur verið að fara og koma frá útlöndum, svo er það vinnan og allt hefur verið á fullu hjá naflakuskinu síðastliðna daga. Erum bara komnar í spilun á x-inu! Minni eindregið á heimasíðuna www.myspace.com/naflakusk .

En annars fór Eyrún Fríða til danmerkur í gær. Kristín á alheimsmót skáta í englandi í dag. Ásta í svíþjóð. Eyrún fer til skotlands þann fyrsta ef ég man rétt. Hildur systir er farin sem aupier til noregs og verður þar næsta heila árið. Ívar er samt sem áður bara á landinu.

Sjálf kom ég með Sonju heim frá Svíþjóð síðastliðinn mánudag úr keppnisferð með fótboltanum. Fín ferð get ég sagt ykkur. Lentum í 8-16 sæti á mótinu sjálfu sem ég kalla góðan árangur, vorum að keppa við 17 og 18 ára stelpur meðan við erum aðeins 15 og 16 ára peð. En þið getið séð myndir frá þeirri ferð seinna meir, kannski í kvöld, annars bara þegar ég nenni.

Svo er það Spánn á morgun. Mamma, pabbi, Björk og Sindri fóru í gær og ég fer með engri annarri en celebinu henni Sonju í Naflakusk á morgun að hitta þau. Ætlum að reyna að tana eitthvað fyrst Puerto Rico var ekki alveg að gera sig.

En Þytur kláraðist í dag með pompi og prakt á stælnum. En ekkert að óttast strákar, við munum auðvitað mæta á árabáta og belgæfingar þegar við komum að utan. Hoppum í sjóinn og við Eyrún kannski kíkjum á tópaz því við ætlum að vera nettar eins og Atli og splæsa á okkur blautbúning úr europris. Þurfum að æfa okkur aðeins betur í hliðarvind og höfuðbitabyr. Heyrðu já og að velta. Klárlega. Annars vorum við eitthvað að tala við Gunnar Geir áðan um að kaupa terhi big fun fyrir klúbbinn. Hann tók vel í það enda erum við búnar að sættast við hann eftir að hann kenndi okkur fullt af hnútum; skutulsbragð, augasplæs, kerlingahnút og eitthverja fleiri sem ég man ekki hvað heita, svo kenndi Steinn okkur auðvitað pelastikkinn og styttihnútinn.
Fórum eftir hádegi í gær út á sjó og testuðum nýja belginn sem þeir frábæru Gunnar og Steinn keyptu. Mjög mikil skemmtun þar á ferð þótt ákveðnir aðilar urðu pínu smeykir á tímabili eftir að hafa spjallað við augnlækninn sinn. En þær Magnhildur og Eyrún gerðu sér bara glaðan dag og fóru á árabát og hoppa í sjóinn. Koma myndir frá þessu öllu hér rétt á eftir, vonandi. 

Nenni því miður ekki að blogga meira í bili,
Bið að heilsa,
Hlín.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 20:04:12 / Sonja

fööökkkeeerrrr

Stelpur fökkk hvað með að bloga baba?

fljótlegt og gott

Jáá minn kom heim frá Sweden í dag jáhá, vorum að keppa í fóbó stuð þar, unnum okkar riðil en lentum í 8-16sæti gott? hmm
Verð að segja að þessi ferð var stuðstuð ég yrði endalaust að skrifa um hana!! hún  var all svakaleg Ester dirtypants fjúfjú!
En sonasona nenni að skirfa umhana það koma myndir innan tíðar er það ekki annars Hlín??

Gamla settið tók svo á móti manni áðan þau voru eimitt ný komin heim frá US and A, slatta keypt handa mér meira að segja jólagjöfina míns sem ég er búin að fá núna því þau gerðu mistöka að segja litlu systyr minni frá því og hún kann ekki að halda neinu leyndu svo þau létu mig bara fá hana áðan og það var IHome me glöð baba..ásamt slatta öðru meira að segja hjásvæfu grrrrr
Svo er maður að fara með Hlín beipílöv til spánar á laugard. can't wait, tvær í flugvél fökk eigum eftir að missa af henni sérstaklega með Hlín í farar broddi...dó....

en svo er maður núna heima hjá Eyrúnu Þ að elda ásmat Möggubaba svo verður bara chill eða eitthvað gaman

Heyy kveð verð að hjálpa þeim svo þær brenna ekki matinn minn! bléééhhh

SonjaBaBa

Vil bara minna á

myspace.com/naflakusk

hapacrap&pálmund


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 00:23:22 / Sonja

hhmm

Góðan daginn

Jáá góðir hásar við erum að tala um skemmtilega viku já heldur betur!!

Jahá Naflakusk er að fara í stúdíó á miðvikudaginn8| ójá þetta var lika svipurinn á mér þegar ég frétti þetta.....word??

Jáá svo á Föstudaginn þá flýg ég héðan og fer til Svíþjóðar með fótboltanum spennan er í hámarki soldið stress í gangi þar sem mamma er ekki á landinu og ég þarf sjálf að pakka sem er eitthvað nýtt fyrir mér...dó.....
en ég er búin að skrifa niður hvað ég ætla að taka með mér svo ætla ég að segja mömmu það og hún bætir við:haha: er til betra plan en þetta?? fökk nei baba,

heyrheyr Ásta og við og 3fimleikagellur +Kristín+EyrúnF skelltum okkur á Caruso að spice eða snakke man aldrei hvor er hvað svo já;) það var úbber gaman svo var meira að segja Kristjana þjóninn okkar sem var snilld....svo var Kalli þarna líka algjört augna konfekt sem reyndar tekur og stóra bita og tyggur asnalega skammKalliskamm! enég held að hann hafi náð þessu á endanum færð klapp á bakið fyrir það snáði.

heyrðu ég nenni þessu bara slet ikke svo  bæ

Sonja


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 20:15:12 / Sonja

Föökkkk<'

 

Góðan daginn Íslenski Lýður..

Jáá akkurar fyrir 16 árum fæddist skrímsli fökk? ónei það fæddist yndisleg mannenskja að nafni:

ÁSTA BJÖRK ANDERSEN SVEINSDÓTIR

\"\"\"\"

jáá þessa mannsekju hef ég þekkt síðan ég man eftir mér úhúhú;)

en..


\"\"

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún ÁSTA.
Hún á afmæli í dag.

Hún er 16 ára í dag,
hún er 16 ára í dag.
Hún er 16 ára hún ÁSTA.
Hún er 16 ára í dag.

Eigðu góðann dag beip;*

Image hosting by TinyPic

\"ImageSonjaBaBa


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 18:56:26 / Octavo

Mega blogg

Hæ Hó!

Ætla aðeins að blogga um hvað hefur á daga mína drifið síðustu daga þar sem síðasta bloggfærsla mín á þessum vef kom fyrir rúmlega tveimur mánuðum.

Byrjum bara á sunnudeginum 17 júní, en eins og mörgum er kunnugt halda Íslendingar þá uppá þjóðhátíðardag sinn með pompi og prakt. Eins og sönnum Íslendingum sæmir héldum við stelpurnar uppá þennan afmælisdag Jóns heitins Sigurðssonar með heimsókn í miðbæ Reykjavíkur þar sem helstu hipsterar landsins og appelsínugular stúlkur í engum buxum sameinuðust og skemmtu sér saman. Við fórum á tónleika við Arnarhól þar sem hljómsveitir á borð við Sprengjuhöllina, Steed Lord og árabátaáhugamanninnn Benna Hemm Hemm skemmtu sálum okkar með ljúfum tónum. Við stigum einnig trylltan dans í Lækjargötunni þar sem Páll Óskar Hjálmtýsson DJ-aðist eins og óður væri eins og ein kona sem gerði sér lítið fyrir að vippaði sér úr bolnum og dansaði nakin, þó ekki með tár í augunum.

Þriðjudagskvöldið 19 júní skellti ég mér á tónleika frönsku hljómsveitarinnar Air í Laugardalshöllinni. Ég mætti um átta ásamt Kristínu systur minni, Árna kærasta hennar og Árna Plúseinn tónlistarmanni með meiru. Ég nennti þó ekki að hanga með þeim þannig ég hitti þær stöllur Kristínu Fjólu og Eyrúnu Fríðu eftir að við höfðum heilsað Dóra DNA, haha. En já, hin norska Kate Havnevik sá um upphitunina og verð ég að segja alveg eins og er að ég hef alveg það betra. Hún söng voða vel og allt það, en skildi ekkert eftir sig. Eina sem ég minnist af henni var að hún var geðveikt lík Björk í tónlist og framkomu, meira var það ekki. En eftir að fröken Havnevik hafði lokið sínu stigu Air mennirnir Jean-Benoit Dunkel og Nicolas Godin á svið við góðar undirtektir áhorfenda. Þeir tóku flest af sínum þekktustu lögum eins og Sexy Boy, Kelly Watch The Stars, Venus, Cherry Blossom Girl, Run, Don´t Be Light, Alone In Kyoto og La Femme d'Argent í bland við lög af nýja disknum eins og Once Upon A Time, Mer Du Japon, Napalm Love og Photograph. Tónleikarnir voru hinir fallegustu og skemmti ég mér konunglega og vona að flestir hafi gert það.

Fimmtudaginn 21. júní afrekaði ég lítið nema ég, Eyrún og Steinn fórum útá bát eftir vinnu að tana smá =)

Föstudagurinn 22. júni er í dag. Til hamingju með það.

Munið svo - www.myspace.com/naflakusk

Takk fyrir lesturinn!

// Magga

Air Fleppzen


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 16:29:47 / Sonja

HæHó og JibbíJey og JibbíJey það er kominn 17 júní:D

 

Blellerrr..

Við erum að tala um Þjóðhátíðar-daginn marrhh (sama orðið eða??;)
en mínum dag var háttað sona vaknaði sona 12 við ferlega hrezz stuðmanna lög á borð við fönn,fönn,fönn,fönn Íslenska fönn & mannstu ekki eftir mér! við erum að tala um toppÍslensk lög!
en núna eru leikara úr abbabba? að leika listir sínar jújú uppáhaldið mitt og Hlínar forðum daga:)
en svo seinna í dag erum við bara að tala um reykjavík það er að segja ef þessa pussur svara mínu smsi!?

Enn gaman að segja frá því ég fór til Húsavíkur á föstudaginn að keppa en við erum að tala um mesta flugna bæ ever hvað fá flugaurnar að borða ef þær fá ekki FH-inga að borða? fökk
en jáá mjög svo hress ferð svaf ekkert og þá meina ég ég var sú eina sem svaf ekkert þetta var ekkert sona að blaðra ég bara svaf ekki ég held að ég sé komin með gráafiðringin eða?:']
en hress rútur fer marrh ég sat við hliðina á Hlín og Ester en nei þær sváfu alla leiðina nema ég..dó...
en svo keptum við á Lau gaman að segja frá því að við UNNUM 6-0 :D A liðið beipí<3;*
en svo fórum við heim eftir að og gleður mig að segja að ég og Ester erum með allveg eins tónlistar smekkk svo fokk off  M,E,E,H,K hehe.
Svo var bara komið heim hitti stelpurnar vorum geðveikt kúl og héngum niðrí firði whutt??
en ég nennti ekki að vera þar svo ég skundaði heim svo komu stelpurnar til mín og við til Hlínar það er að segja magga og EyrúnÞ og við gerðum bara einhverja skrítna hluti..

En heyy ég segi þetta flott sona
STELPUR ÉG ER AÐ FARA AÐ HRINGJA Í YKKUR;)

Sonja

Heyy Eyrún? hver fer 2x í HIV tékk á ári??


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 02:09:46 / Octavo

Lalalala

Útskriftin áðan, ótrúlega skrítið að vera í raun og veru ekki í neinum skóla. En útskriftin gekk vel rosalega sorglegt að kveðja alla og ég fékk í raun ekki að kveðja alla nógu vel en það er kannski ágætt því við munu vonandi öll hittast einhvern tíman aftur í framtíðinni. Naflakusk spilaði, ræður voru haldnar (tilhamingju með ræðuna Davíð Arnar) svo voru veittar viðurkenningar & svo loksins vorum við útskrifuð, er ekki alveg búin að átta mig á þessu svo skrítin tilfining, ótrúlega ánægð en langar samt bara að grenja út af engu hahaha (svefngalsinn farinn að segja til sín?). Annars ætlaði ég að setja inn gamlar minningar frá því í 1. – 10. bekk.

 

 Hver man ekki eftir, Bólinu og skrítnu myndunum á veggjunum og klefanum fyrir “Dj”-inn. Og ljóðatímum & hvernig sumir gátu aldrei lært ljóð, hahaha eða þegar Leó var í skólanum og glerbrotin hrundu yfir mig, Áslaugu & Eyrúnu :') Eða í 5. bekk þegar Áslaug Sif kom í skólann og allt breyttist. Oh!! Svo var það Klósettbarinn, þið sem vitið ekki hvað það var gætuð furðað ykkur á þessu nafni en það var snilld :') Svo þegar við kveiktum í undir einni stofunni, hahaha Og Gamli skólinn, myglað lítið húsnæði sem var samt svo frábært og svo auðvitað nýji skólinn, og þegar skólinn varð 30 ára.

Svo í 5 – 7 bekk þegar við sömdum nokkra dansa, klæddum okkur í allt svart og túberuðum hárið eða þegar við dönsuðum stóladans sem var í “grófari” kantinum. Svo má ekki gleyma Helgu Páls & Guðrúnu Halldórs. Allt vinahópa dramað, allir voru vinir allra en svo fór allt í rugl þegar gelgjan kom, jemin hvað sumt var hallærislegt, gaman að hlægja af þessu núna! Þegar Magga, Íris Telma & Guðrún Elín ætluðu að lemja Jóhönnu, Tinnu & Gunnhildi & elta þær heim :'D Kofunum & þegar kraninn datt næstum því á einn kofann. Þegar Engjó kom í Víðó & við byrjuðum í unglinadeildinni og litum öll út eins og krúttlegir fávitar. Öll frábæru böllin og öll þau ömurlegu sem voru í raun bara fyndin ef maður hugsar til baka. Leikritin, Danirnir, ferðalögin & allt vina dramað. Gæti haldið endalaust áfram, en það er fyrir seinni tíma. Þakka bara fyrir mig, og vona að allir eigi kreisí sumar! :D

 

 

kv. Guðrún Helga

Þið eruð bestust! Vúhú! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 21:49:31 / Sonja

Spottiger4ever<33;*

 

Blelleeerrr...

Síðast skóladagurinn var í dag en hann var sona....
vaknaði  8 eyrún kom hálf 10 og svo kom Hlín  og við fórum til Guggu og þar var Magga fórum við svo uppí Kapla... við gjörsamlega gengum í þessari úrhellis rigningu váá hvað maður var reiður útí heiminn aww Kjáwnar við ohoho...jááá svo þegar við mættum á staðin þá var prógrammið sona láta kennarana merkja við svo bara fara heim bæ eða fara í fótbolta sem jáá sona 5 gerðu eða svo ekki vera hissa en jú ég held að það voru bara 8 bekkingar aww dúllur

svo lokkaði Edda beip;* kennari okkur inní klefa og sgði okkur = Naflakusku að spila á útskriftinni sem er btw á morgun um kveldið.. ekki missa af því.

við vorum ekki allveg að taka vel í það þá en svo fórum við uppí skóla til að tala við Helgu Valtýrs námsráðgjafa svo vorum við þar og hittu eddu beip aftur og fór að tala um útskriftina og þá ákáðum við það að spila á útskriftinni!!! ójáá beip

Svo var skólinn búinn og ég fór að vinna sem var skemmtileg reynsla jáá gaman að segja frá því að ég var að byrja í nýrri vinnu sem er fagkynning sem sagt ég er að kynna mat búðum mjög gefandi starf!!
Allavegan ég tók strætó missti svo á bus 14 svo ég fór bara að  perrast á hlemm;)hehe
svo fór ég í strætó var ein í smá stund þá kom þessi sexý bastarður sem á ekki að fá að lifa lövlövlöv og tyllti sér hjá mér... hann hafði öll sætin í strætónum um að velja og hann settist við hliðina á mér!! Hann var Rússi or sum og fyrir þá sem fatta ekki þá var þetta kaldhæðni fyrir ofan;P til að hafa allt á hreinu fór svo heim að lifa lífinu...
nenni ekki að hafa þetta lengra

liv in pís vót for Bush;*

Sonja


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 00:46:13 / Sonja

SPECT<3

Bleller..

Tók þessa netkjepz ákvörðun um að bloggga þar sem enginn hefur verið að gera það undan farið..

jápp Horfluguballið var í síðustu viku..það var sona í lagi sko svona í byrjun svo þegar þessir blessuðu rapparar komu þá datt allt niður dó!!
kannski fannst mér það bara þar sem ég fíla alls ekki rapp og var bara að deyja þegar þeir voru og komst ekki aftur í stuð fyrr en ballið var nærrum því að enda en sonasona..

Svo tóku mamma og pabbi uppá því að fara til Póllands að láta nauðga sér haha neinei en allavegna þau fóru þangað til að fara á evrópstþing í kiwanis þar sem það er búið að hækka pabba í tign eða eitthvað?? svo ég fór að hlakka mjög svo til að fá að vera ein heima party at sonja´s en nei þá fyllist húsið að fólki sem sagt Gunna og hennar kall og börn svo Gummi bró og hans kona og barn svo kannski líka Hanna frænka svo jáá þar fór það!!!!!
svo nei ég verð ekki ein heima...dó..

Svo á morgun verður mín síðast vakt hjá Hagkaupum í Garðabæ yezzzget ekki beðið..

ég læt þetta nóg af mér kveða;)

Sonja

heyy stelpur ég var að velta því fyrir mér hvenær við ætlum á skautamyndina??

Black and White


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 19:23:47 / magga

En Svali, er alltaf gamli góði Svali...

Já góðan dag kæru landsmenn og til hamingju með að Uppstigningardagurinn sé á morgunn.
Amen.

Ég ætla þó ekki að blogga hér um gildi þessa merka dags heldur ætla ég að upplýsa ykkur um daginn okkar í dag sem var með eindæmum skemmtilegur enda eyddum við honum með fullt af súper-celebum.

Þannig er mál með vexti að ég, Eyrún í öðru veldi, Hlín, Kristín og Sonja fórum í starfskynningu til útvarpsstöðvanna X-ins 977 og FM 957. Ég, Eyrún F og Kristín á þá fyrr nefndu og hinar á þá síðar nefndu.
Við byrjuðum daginn á því að heilsa Frosta á Xinu með handabandi og sýndi hann okkur einnig aðstæður. Svo kenndi hann okkur á allt útvarpstölvukerfið og hvernig lagavöl og annað virkaði. Við skoðuðum einnig fullt af mailum hjá honum, meðal annars hatursbréf til Heiðars Austmanns frá einni biturri konu og mjög svo persónuleg skilaboð frá Geir H Haarde – ÚLALA!

Við fórum líka ekki tómhentar heim, fengum sko allar 2 miða á einhverja mynd sem ég man ekki hvað heitir, 2 miða hver á FORsýningju Pirates Og The Carribean, sem verður 2 dögum fyrir heimsfrumssýningu, 2 netta boli frá Xinu sem þeim var bannað að dreyfa og úber nett græn FM957 armbönd,, og svo fullt af kóki og orku og eitthvað..

Og ekki má gleyma myndunum sem við tókum af okkur með öllum celebunum sem voru þarna, til að mynda af Heiðari Austmann, Bjarna Ara, ÍVARi GUÐMUNDS og að sjálfsögðu Brynjari Má og Frosta, en þær munu koma hingað innan skamms (Eyrún og Kristín?).

En já, það var semsagt mjög mikið hlegið þarna, sérstaklega þar sem Frosti var með mjög svipaðan húmor og við, allaveganna í sambandi við Ívar Guðmunds (The Lazy Eyed Man), Fólkið á FM, Tanað fólk, og náttúrlega Nephew en við sýndum honum að sjálfsögðu mæspeisið hjá þeim.

Já, þetta var semsagt frábær dagur sem verður endurtekinn á föstudaginn, en þá munum við fara á FM og stelpurnar á Xið – það mun vera eitthvað skrautlegt..

Sjáumst !

-Magga


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22
Leitarbox